Reglur og Leikskipulag
Lið og leikmenn
Fjöldi leikmanna skráðir í lið eru 15 útispilarar og 1 markmaður.
Fjöldi MFL leikmanna er 5 á hvert lið sem skráð er í deildina.
35 ára aldurstakmark á MFL leikmann. Miðað við Fæðingarár leikmanns í upphafi
deildar. (Engar undantekningar) (2025-2026 er fæðingarár 1990)
Skila þarf leikmanna lista fyrir auglýsta dagsetningu móts og er sá listi tæmandi. (Engar breytingar eftir það)
Leikmaður skráður í lið má einungis spila með einu liði í mótinu.
Hægt er að fá 3 lánsmenn lánaða úr lánslista.
Ef lið fær lánsmann frá andstæðing eða öðru liði þá sjálfkrafa tapast leikurinn en leikurinn getur spilast.
Markmenn eru undanskildir lánsmanna reglunni.
Lánslisti: Menn skráðir á lánslista geta spilað með hvaða liði sem er. Menn skrá sig á lánslista ef þeir vilja spila en eru ekki í neinu liði. Frítt verður að skrá sig á lista á fyrsta tímabili. Verður endurskoðað eftir fyrsta tímabil.
Skráning fer fram með því að senda email á
Undanþágur eru veittar af deildinni.
Leikskipulag
Spilað er 3x15 mínútur fljótandi. ( ísinn verður ekki hreinsaður á milli leikhluta)
Stigagjöf: 2 stig fyrir sigur og 1 stig fyrir jafntefli 0 stig fyrir tap.
Rangstaða er tekin á þann veg að pökkurinn er sendur aftur fyrir markmanns línu andstæðings og sóknarsvæði hreinsað
Icing er tekin á þann veg að pökkurinn er sendur aftur fyrir markmanns línu andstæðings og sóknarsvæði hreinsað
Deildin er ekki "full contact" deild, en það má fara í manninn.
Lið sem er 5 mörkum yfir spilar einum manni færri.
Lið sem er 6 mörkum yfir spilar tveimur mönnum færri.
Brottvísanir
Spilað er eftir hefðbundnum IIHF reglum nema annað sé tekið fram.
Ef lið brýtur af sér er tekið víti.
Fyrsta “Game misconduct” brot í leik er sjálfkrafa brottvísun úr leik ásamt einum leik í leikbann.
Annað “Game misconduct” brot í leik er brottvísun úr leik ásamt 3 leikjum í leikbann. Þriðja “Game misconduct” brot í leik er brottvísun úr deildinni